Avero

Snjallari lausnir. Betri rekstur.

Valmynd

Auglýsinga- og upplýsingaskjáir

Tilboð, kynningar og upplýsingar á skjám sem þið stýrið á einum stað. Efnið getur líka orðið til úr vörugögnunum ykkar.

Kynningar sem fylgja því sem er að gerast

Skjár við innganginn, við kassann eða á hillunni nær til viðskiptavinarins á réttu augnabliki. Þið stýrið efninu á einum stað, tímasetjið birtingar og gefið hverjum skjá sitt hlutverk.

Avero býður skjái í mörgum stærðum, setur þá upp og tengir við gögnin ykkar. Lítill skjár við vöru og stór skjár við innganginn kalla á ólíkt efni, og við hjálpum ykkur að finna hvað á heima hvar.

Auglýsingin verður til úr vörugögnunum

Hér verður þetta skemmtilegt. Vara fer á tilboð og jólin nálgast. Með tengingu við vörugögn og gervigreind getur auglýsingin orðið til af sjálfu sér, í jólabúningi, og birst á skjánum án þess að nokkur þurfi að útbúa hana frá grunni.

Þessa sjálfvirkni þróum við og tengjum sérstaklega; hún fylgir ekki sjálfkrafa með skjánum. Þið ákveðið hvaða gögn má nota, hvernig efnið lítur út og hvaða reglur gilda um birtingu. Hægt er að byrja á miðlægri umsjón og bæta sjálfvirkninni við síðar.

Búnaður sem kemur við sögu

ZKONG ZKS101D, ZKONG ZKL376. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.