Aðgangur eftir bókun eða áskrift
Bókun eða áskrift opnar hliðið fyrir gestinum á réttum tíma. Við sjáum um hliðin og tenginguna við bókunarkerfið.
Bókunin getur opnað dyrnar
Gestur bókar tíma eða er með áskrift, mætir og gengur inn. Enginn þarf að opna fyrir honum í hvert sinn, og starfsfólkið heldur áfram að vinna með bókanir og aðild í kerfinu sem það þekkir.
Þetta höfum við gert áður. Avero smíðaði tengingu milli SimplyBook.me og aðgangshliða sem er í notkun á íþróttastað. Ef þið notið annað kerfi skoðum við það með ykkur; tenging við eitt kerfi þýðir ekki sjálfkrafa að annað virki eins.
Nýr inngangur er tækifæri til að hugsa komuna upp á nýtt. Hvernig mætir gesturinn, hvernig staðfestir hann bókun eða aðild, og hvað gerist ef eitthvað gengur ekki upp?
Meira en hlið
Þegar aðgangurinn er orðinn rafrænn opnast fleiri möguleikar. Talning getur sýnt hve margir eru í salnum og hvenær álagið er mest. Aðgangur getur gilt um ákveðinn sal eða ákveðinn tíma. Og þið sjáið nýtinguna í tölum þegar skipuleggja þarf stundaskrá eða opnunartíma.
Gesturinn getur auðkennt sig með ýmsum hætti, til dæmis með QR-kóða eða andlitsauðkenningu, og við finnum með ykkur hvað hentar gestunum og staðnum.
Búnaður sem kemur við sögu
Gönguhlið með vængjum, Vænghlið á stólpa. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.

