Farþegatalning í ferjum og bátum
Sjáið hve margir fara um borð og frá borði í hverri höfn, án þess að telja í höndunum.
Hve margir eru um borð?
Á ferju og farþegabát skiptir farþegafjöldinn máli í hverri ferð. Hann segir til um nýtingu, álag á áhöfn og þjónustu og hvernig áætlunin gengur upp. Með sjálfvirkri talningu við innganginn liggur talan fyrir án þess að nokkur þurfi að telja.
Avero er samstarfsaðili Xovis á Íslandi. Xovis býður farþegatalningu fyrir flest farartæki í almenningssamgöngum, þar á meðal ferjur. Við finnum út með ykkur hvað hentar skipinu og sjáum um uppsetningu og tengingar.
Talning við innganginn sýnir hve margir fara um borð og frá borði í hverri höfn. Þegar hún er tengd áætluninni sést hvaða ferðir og viðkomustaðir eru mest notaðir.
Tölur sem nýtast í landi
Þegar talningin tengist ferðaáætluninni sjáið þið nýtingu eftir ferðum, dögum og árstíðum. Það hjálpar við að skipuleggja áætlun, mönnun og þjónustu um borð. Við smíðum yfirlitið og tengjum það við kerfin sem þið notið.
Ef siglingarnar tengjast rútuferðum getur sama yfirsýn náð til þeirra, svo ferðalag farþegans sjáist í heild.