Farþegatalning í strætisvögnum og rútum
Sjáið hve margir fara inn og út á hverri stöð og hvernig hver ferð nýtist.
Hver ferð segir sína sögu
Heildartala dagsins segir lítið um ferðina klukkan átta sem er alltaf full, eða ferðina um miðjan dag sem fer nánast tóm. Farþegatalning sýnir hvernig hver ferð nýtist, hvar fólk stígur um borð og hvar það fer út.
Það gefur traustari grunn þegar ræða þarf tíðni ferða, stærð vagna og leiðakerfi. Avero er samstarfsaðili Xovis á Íslandi. Við setjum upp talningu við dyrnar og tengjum hana við ferðagögnin ykkar, svo tölurnar birtist þar sem þeir sem skipuleggja aksturinn vinna.
Talning á hverri stöð sýnir hvar farþegarnir nota leiðina í raun. Þegar hún er tengd réttri ferð sjáið þið breytingar sem hverfa í heildartölu dagsins og getið borið saman brottfarir.
Talning og ferðagögn í sömu yfirsýn
Þegar talningin er tengd réttri stöð, ferð og tíma sést hvar álagið myndast og hvernig það breytist. Við smíðum tengingarnar og framsetninguna. Hvort tölurnar berast jafnóðum eða eftir ferð fer eftir kerfunum ykkar.
Gott er að byrja á einum vagni. Þá sjáið þið tölurnar úr ykkar eigin akstri og getið metið þær áður en fleiri vagnar bætast við.
Búnaður sem kemur við sögu
XOVIS APF. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.
