Gestatalning
Sjáið hve margir koma og hvenær mest er að gera, og skipuleggið þjónustuna eftir því.
Þjónustan í takt við ferðirnar
Á samgöngumiðstöð kemur álagið í bylgjum. Rúta kemur, salurinn fyllist, röðin við afgreiðsluna lengist og tíu mínútum síðar er allt rólegt aftur. Með mælingum á umferð og bið sjáið þið þessar bylgjur svart á hvítu og getið skipulagt þjónustuna eftir þeim.
Avero er samstarfsaðili Xovis á Íslandi og sér um lausnina í heild: mælingarnar, yfirlitið og tengingarnar við kerfin sem þið eruð með.
Aðsókn við innganga sýnir hvernig álagið fylgir komum og brottförum, svo þið vitið hvenær þarf fleiri á vakt.
Látum upplýsingarnar nýtast starfsfólkinu
Þegar biðin fer yfir viðmið sem þið ákveðið getur starfsfólk fengið tilkynningu og opnað aðra afgreiðslu eða aðstoðað gest. Gervigreind getur tekið saman hvenær álagið endurtekur sig og hvað þarf að fylgja eftir, eftir því hvaða gögn eru tiltæk.
Í flæðisyfirlitinu birtist hver gestur sem númer, ekki sem nafn. Hver sér gögnin og hve lengi þau eru geymd er hluti af því sem við göngum frá með ykkur.
Búnaður sem kemur við sögu
XOVIS PC2SE, XOVIS PC3SE. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.

