Gestatalning
Sjáið hve margir koma og hvenær mest er að gera, og skipuleggið þjónustuna eftir því.
Yfirsýn yfir svæði sem enginn sér allt í einu
Á útisvæði kemur fólk úr mörgum áttum, staldrar við og heldur áfram. Enginn starfsmaður sér það allt. Talning og flæðisgreining gefa ykkur mynd af aðsókninni: hve margir koma, hvenær, og hvernig svæðið er notað.
Það nýtist þegar skipuleggja þarf viðveru starfsfólks, meta hvort ný gönguleið virkar eða sýna aðsóknina í tölum. Avero sér um útfærsluna, með búnaði sem er ætlaður til notkunar utandyra.
Við afmarkaðan inngang sést aðsóknin eftir tíma dags og í hvora átt fólk fer. Ef gestir komast líka inn annars staðar tökum við þær leiðir með.
Tölur sem nýtast í skipulagi og þjónustu
Þegar mælingarnar safnast upp getið þið borið saman álagstíma, daga og tímabil. Ef aðgangur að svæðinu er um hlið má tengja talninguna við það, svo opnun og upplýsingar til gesta taki mið af fjöldanum inni.
Við smíðum líka yfirlit og tilkynningar eftir því sem reksturinn kallar á. Avero er samstarfsaðili Xovis á Íslandi, og í flæðisyfirlitinu birtist hver gestur sem númer, ekki sem nafn.
Búnaður sem kemur við sögu
XOVIS PC2 Outdoor, XOVIS PC3 Outdoor. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.

