Ræðum hugmyndina
Segðu okkur hvað þú ert að velta fyrir þér. Við komum með hugmyndir og sjáum um verkið ef þér líst á þær.
Það má byrja á því sem þig langar að geta gert
Þú þarft ekki að vita hvaða búnaður eða kerfi leysir málið. Það er okkar hlutverk. Kannski sérðu leið til að bæta þjónustuna, langar að opna nýjan stað eða vilt losa starfsfólkið við handavinnu. Kannski er þetta bara tilfinning um að eitthvað mætti ganga betur.
Segðu okkur frá því. Við spyrjum, hlustum og komum með hugmyndir, og stundum kemur í ljós að hægt er að gera meira en þig grunaði.
Möguleikarnir liggja oft á milli kerfa
Hlið getur unnið með bókunarkerfi. Talning getur hjálpað við að skipuleggja þjónustu og kallað eftir aðstoð þegar bið lengist. Vörugögn geta nýst bæði á hillumiðum og auglýsingaskjám. Við þekkjum bæði hugbúnaðinn og tækin og sjáum því hvað getur unnið saman.
Ef þér líst á hugmyndina sjáum við um að hún verði að veruleika.