Rafræn skilti
Nöfn og upplýsingar við herbergi og á borðum sem þið breytið í tölvunni. Skiltið getur líka sýnt stöðu úr bókunarkerfi.
Réttar upplýsingar við réttar dyr
Fundarherbergi skiptir um hlutverk, nýr starfsmaður fær skrifstofu, gestur fær nafnið sitt á borðið. Með rafrænum skiltum breytið þið merkingunni í tölvunni og hún birtist á skiltinu. Enginn prentar, klippir eða plastar.
Avero býður rafræn nafnaskilti og herbergismerkingar. Útlitið er samræmt, sem hjálpar gestum að rata, og skiltin fást í stærðum sem henta bæði við dyr og á borð.
Bókanir og merkingar geta unnið saman
Skiltið við fundarherbergið getur sýnt stöðu þess og heiti fundar úr bókunarkerfinu. Ef tenginguna vantar smíðum við hana. Hve ört skiltið uppfærist og hvað það getur birt fer eftir gerð þess.
Þið ráðið hvað sést. Skiltið getur sýnt að herbergið sé upptekið án þess að segja hver fundar eða um hvað.
Búnaður sem kemur við sögu
ZKONG ZKC75VM-DNLE4, ZKONG ZKC73V-DNE4. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.

