Avero

Snjallari lausnir. Betri rekstur.

Valmynd

Rafrænir hillumiðar

Verðið breytist í verslunarkerfinu og birtist á hillunni. Enginn prentar eða skiptir um miða.

Verðið breytist á einum stað

Verðbreyting þýðir í dag prentara, skæri og hring um búðina. Með rafrænum hillumiðum breytist verðið í verslunarkerfinu og birtist á hillunni. Starfsfólkið fær tímann í annað, og verðið á hillunni kemur úr sama kerfi og verðið við kassann.

Við setjum miðana upp og tengjum þá við verðgögnin ykkar. Útlit miðanna má laga að vörunum, og sama kerfi getur náð yfir eina verslun eða margar, með sameiginlegu verði eða ólíku eftir stöðum.

Í venjulegum hillum skiptir mestu að miðinn sé læsilegur og passi við hilluna. Við sýnum ykkur stærðir og útlit með ykkar vörum, svo þið sjáið hvernig nafn, verð og aðrar upplýsingar koma út áður en miðarnir eru valdir.

Þegar eitthvað þarf að skoða

Upplýsingar um rafhlöður og uppfærslur sýna hvaða miðar þurfa athugun. Með frekari tengingum má líka fá ábendingu um verð sem lítur út fyrir að vera rangt, eins og kókdós á 15.000 krónur, eða kælivöru sem er skráð á svæði með fatnaði. Ábendingarnar byggja á skráningu í kerfinu; miðarnir eru ekki staðsettir í rauntíma.

Starfsfólkið fær ábendinguna, skoðar málið og ákveður hvað á að gera. Sömu vörugögn geta líka nýst víðar, til dæmis í tilboðum á skjám í versluninni.

Búnaður sem kemur við sögu

ZKONG ZKC29V-NE4, ZKONG ZKC35V-NE4. Hvaða búnaður hentar ræðst af staðnum. Það finnum við út saman.