Hugbúnaður fyrir ykkar verkefni
Við smíðum hugbúnaðinn sem ykkur vantar, hvort sem það er ný lausn eða viðbót við kerfi sem þið notið.
Hugmyndin getur orðið hluti af daglegu starfi
Stundum er það lítið viðmót sem sparar starfsfólkinu endurtekna vinnu. Stundum er það ný þjónusta sem krefst þess að sjálfsafgreiðsla, greiðslur og búnaður vinni saman.
Þá smíðum við það. Þið komið með hugmyndina og þekkinguna á starfinu; við sjáum um útfærsluna og tengjum við kerfin sem þið eruð með.
Hugbúnaður og búnaður í sömu lausn
Mörg verkefni ná út fyrir skjáinn, til dæmis þegar greiðsla í ómannaðri verslun á að opna útganginn. Við þekkjum bæði hugbúnaðinn og tækin og leysum hvort tveggja í sama verkefni.
Við byrjum á fyrstu útgáfu sem kemst fljótt í notkun og bætum svo við hana. Gervigreind getur bæst við þar sem hún hjálpar, til dæmis með samantektum eða svörum úr handbókum.