Tengingar milli kerfa
Látið kerfin skiptast á upplýsingum, svo þær séu skráðar einu sinni og nýtist alls staðar.
Kerfin ykkar geta gert meira saman
Sama talan slegin inn á tveimur stöðum. Bókun sem þarf að skrá aftur í öðru kerfi. Yfirlit sem er sett saman í höndunum fyrir hvern fund. Þetta er vinna sem kerfin geta séð um sjálf þegar þau eru tengd saman.
Avero smíðar þessar tengingar. Við höfum meðal annars smíðað tengingar við SimplyBook.me, Salescloud, Shopify og WooCommerce. Hver tenging er gerð fyrir sitt verkefni, og hvað hentar hjá ykkur finnum við út saman.
Þegar tvíverknaðurinn hverfur opnast fleira
Þegar upplýsingar úr mörgum kerfum koma saman má smíða yfirlit sem áður var ekki til, eða láta gervigreind svara spurningum starfsfólks. Tenging sem byrjaði á einu verki verður þannig oft grunnur að fleiru.
Við sjáum líka um það sem enginn tekur eftir fyrr en það klikkar.